Stoð 1

Notaðu hana af ásetningi

Ein fyrirspurn notar litla orku. Spurningin er hvað gerist þegar milljarðar nota sífellt þyngri gervigreind. Um orku, vatn, athygli og val.

Síðast yfirfarið:

Byrjum á sterkustu mótrökunum

Þau sem segja að ein fyrirspurn til spjallmennis skipti litlu máli hafa rétt fyrir sér. Nýjustu mælingar og mat benda til þess að venjuleg textafyrirspurn noti 0,24–0,31 Wh af raforku í gagnaveri. Það er minna en flestir halda, og mun minna en eldra mat frá 2023 sem enn er oft vitnað í, 2,9–3 Wh.

Vatnið segir svipaða sögu. Google gefur upp að miðgildi Gemini-fyrirspurnar noti 0,26 mL af vatni til kælingar. Eldri rannsókn sem telur líka vatnið sem fer í að framleiða rafmagnið komst að 7,1–47,5 mL á hvert svar, en hún miðaði við eldri og orkufrekari líkön. Tölurnar mæla ekki það sama, og munurinn sýnir hve mikið veltur á því hvað er talið með.

Ef spurningin er hvort þessi eina fyrirspurn skaði jörðina er svarið líklega nei.

Af hverju áhyggjurnar hverfa samt ekki

Áhyggjurnar snúast ekki um eina fyrirspurn heldur um þrennt annað.

Heildarvöxtinn. Gagnaver í heiminum notuðu 485 TWh af raforku árið 2025, um 1,5% af allri raforkunotkun heimsins. Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) gerir ráð fyrir að notkunin verði 833–1.008 TWh árið 2030, eftir því hvaða sviðsmynd rætist. Gagnaver sem eru sérhönnuð fyrir gervigreind vaxa hraðast og gætu ein og sér notað um 465 TWh það ár.

Þyngri notkun. Fyrirspurnir eru ekki allar jafnar. Rökhugsunarlíkön sem „hugsa“ lengi áður en þau svara geta notað 2,15–7,05 Wh á fyrirspurn. Í einni rannsókn notaði myndgerð að meðaltali 60 sinnum meiri orku en textagerð, og eitt stutt myndskeið úr opnu myndbandslíkani tók um 90 Wh.

Staðbundið álag. Hlutfall af heimsnotkun segir lítið um staðinn þar sem gagnaverið stendur. Þar keppir það um rafmagn, vatn og flutningsgetu við heimili og annan rekstur.

Íslenska samhengið

Á Íslandi er nánast öll raforka endurnýjanleg, 99,98% af vinnslunni árið 2025, og kalt loftslag auðveldar kælingu. Það er raunverulegur kostur. Gagnaver notuðu 588 GWh árið 2024, um 3,1% af raforku til notenda, og notkun þeirra hefur dregist saman um helming síðan 2022 (Orkuspá Íslands 2025). Til samanburðar var öll raforkuvinnsla landsins 18.805 GWh árið 2025.

En orkan er takmörkuð. Raforkueftirlitið mat stöðu raforkuöryggis „mjög viðkvæma“ fyrir fyrstu mánuði 2025 og 2026 (Raforkueftirlitið 2024), þótt horfurnar hafi síðan batnað (Umhverfis- og orkustofnun 2025). Kílóvattstund sem fer í eitt verkefni fer ekki í annað. Hvort hún fer í gagnaver, orkuskipti eða annan iðnað er pólitískt val, ekki náttúrulögmál.

Of mikið til að lesa

Orka og vatn eru ekki einu auðlindirnar. Athygli fólks er líka takmörkuð.

Það kostar nánast ekkert að láta gervigreind skrifa meira: lengri svör, lengri skýrslur, fleiri færslur og fleiri tölvupósta. En einhver þarf að lesa það. Þegar texti verður ódýr í framleiðslu færist kostnaðurinn yfir á lesandann, og það sem enginn hefur tíma til að lesa verður að þjarkaþvælu.

Hefurðu tekið eftir því hve oft spjallmenni svarar í löngu máli þegar stutt svar hefði dugað? Þú getur beðið um styttra svar. Og áður en þú sendir texta sem gervigreind skrifaði áfram: myndir þú nenna að lesa hann?

Taktu líka eftir því hvernig svörin enda. Mörg spjallmenni ljúka svari á tilboði um næsta skref: „Viltu að ég…?“ Það er þægilegt, en það heldur þér líka í samtalinu og býr til meira efni. Það er alltaf hægt að segja: þetta er komið.

Spurningar áður en þú spyrð

Engin þeirra er bannorð. Þetta eru bara spurningar:

  • Þarf ég gervigreind í þetta, eða veit ég svarið?
  • Dugar texti, eða þarf ég mynd eða myndband?
  • Þarf ég öflugasta rökhugsunarlíkanið, eða dugar einfaldara líkan?
  • Er ég að búa til eitthvað sem einhver þarf, eða bara af því að það er hægt?
  • Hefur einhver tíma til að lesa þetta, og væri styttri útgáfa betri?

Þarftu myndbandið, eða dugar textinn?

Tölur á síðunni

Orka fyrir eina venjulega textafyrirspurn

0,24–0,31 Wh

Raforka í gagnaveri fyrir eina dæmigerða textafyrirspurn til spjallmennis árin 2025–2026: miðgildi Google fyrir Gemini (0,24 Wh), mat Epoch AI fyrir GPT-4o (um 0,3 Wh) og miðgildi Microsoft fyrir stór líkön (0,31 Wh). Þjálfun líkana, netflutningur og tæki notandans eru ekki talin með.

Aðferðir eru ólíkar: Google mælir eigin rekstur, Epoch og Microsoft reikna út frá vélbúnaði. Löng inntök og rökhugsun nota margfalt meira. Tölurnar hafa lækkað hratt og breytast enn.

Heimildir: Google (Elsworth o.fl.), arXiv:2508.15734; Microsoft (Oviedo o.fl.), arXiv:2509.20241, útgáfa 2; Epoch AI. Yfirfarið 20. október 2026.

Eldra mat á orku fyrir eina fyrirspurn (2023)

2,9–3 Wh

Gróft mat frá 2023, leitt út frá því að fyrirspurn til mállíkans noti tífalda orku Google-leitar og frá mati á rekstrarkostnaði ChatGPT snemma árs 2023.

Útreikningur í athugasemdagrein, ekki mæling, byggður á eldri vélbúnaði og líkönum. Nýrri mælingar benda til að þetta sé um tífalt ofmat fyrir líkön dagsins. Hér aðeins sem sögulegt samhengi.

Heimildir: Joule (de Vries); Epoch AI. Yfirfarið 20. október 2026.

Vatn til kælingar fyrir eina textafyrirspurn (Gemini)

0,26 mL

Miðgildi vatns sem gagnaver Google nota til kælingar fyrir eina Gemini-textafyrirspurn í maí 2025.

Telur aðeins vatn í gagnaverinu, ekki vatn sem fer í að framleiða rafmagnið. Því ekki sambærilegt við mat sem telur hvort tveggja.

Heimild: Google (Elsworth o.fl.), arXiv:2508.15734. Yfirfarið 20. október 2026.

Vatn fyrir eitt svar (GPT-3, kæling og raforkuframleiðsla)

7,1–47,5 mL

Áætlað vatn fyrir eitt meðallangt svar frá GPT-3, bæði kæling í gagnaveri og vatn við raforkuframleiðslu. Bilið fer eftir staðsetningu gagnavers.

Byggt á orkumati frá 2023 sem er margfalt hærra en nýjar mælingar, svo talan er líklega há fyrir líkön dagsins. Mest af vatninu fer í raforkuframleiðsluna, ekki kælinguna.

Heimild: Communications of the ACM (Li, Yang, Islam og Ren). Yfirfarið 20. október 2026.

Raforkunotkun gagnavera í heiminum árið 2025

485 TWh

Áætluð heildarraforkunotkun allra gagnavera í heiminum árið 2025. Árið áður var hún um 415 TWh.

Mat IEA, ekki mæling. Í sömu skýrslu er talan líka orðuð „nærri 500 TWh“.

Heimildir: International Energy Agency (IEA); International Energy Agency (IEA). Yfirfarið 20. október 2026.

Hlutur gagnavera í raforkunotkun heimsins árið 2025

1,5%

Rúmlega 1,5% af allri raforkunotkun í heiminum fór til gagnavera árið 2025.

Heimild: International Energy Agency (IEA). Yfirfarið 20. október 2026.

Spá um raforkunotkun gagnavera í heiminum árið 2030

833–1.008 TWh

Bilið nær yfir fjórar sviðsmyndir IEA. Grunnspáin er um 945–950 TWh, um 3% af raforkunotkun heimsins, eða nærri tvöföldun frá 2025.

Sviðsmyndir, ekki ein örugg spá. Óvissan vex hratt eftir 2030.

Heimildir: International Energy Agency (IEA); International Energy Agency (IEA). Yfirfarið 20. október 2026.

Raforkunotkun gagnavera sem eru sérhönnuð fyrir gervigreind árið 2030

465 TWh

Grunnspá IEA. Notkun þessara gagnavera meira en þrefaldast frá 2025 til 2030.

Skilgreining IEA: gagnaver búin sérstökum hröðlum fyrir þjálfun og keyrslu gervigreindarlíkana.

Heimild: International Energy Agency (IEA). Yfirfarið 20. október 2026.

Orka fyrir fyrirspurn með langri rökhugsun

2,15–7,05 Wh

Mat Microsoft fyrir fyrirspurnir þar sem líkanið „hugsar“ um 15 sinnum lengur en í venjulegri fyrirspurn. Bilið er miðhelmingur dreifingarinnar (miðgildi 3,91 Wh).

Reiknað mat, ekki mæling í rekstri.

Heimild: Microsoft (Oviedo o.fl.), arXiv:2509.20241, útgáfa 2. Yfirfarið 20. október 2026.

Orka við myndgerð miðað við textagerð

60 sinnum

Í sömu rannsókn notaði myndgerð að meðaltali 2,9 kWh á hverjar 1.000 myndir en textagerð 0,047 kWh á hver 1.000 svör.

Mælt á litlum opnum líkönum og eldri vélbúnaði, ekki á spjallmennum dagsins. Hlutfallið gildir innan rannsóknarinnar; ekki má bera tölur hennar beint saman við mælingar Google.

Heimild: ACM FAccT 2024 (Luccioni, Jernite og Strubell). Yfirfarið 20. október 2026.

Orka við að búa til eitt stutt myndskeið

90 Wh

Mæld orka við að búa til eitt um 5 sekúndna myndskeið (720×1280) með opna líkaninu WAN2.1-T2V-1.3B á sjálfgefnum stillingum. Höfundar meta það um 30 sinnum orkufrekara en myndgerð.

Vinnustofugrein, mæld á einu skjákorti. Orkan vex hratt með upplausn og lengd, og munurinn milli líkana er mikill. Lokuð líkön eins og Sora og Veo hafa ekki verið mæld.

Heimild: Hugging Face (Delavande, Pierrard og Luccioni), arXiv:2509.19222. Yfirfarið 20. október 2026.

Hlutur endurnýjanlegrar orku í raforkuvinnslu á Íslandi árið 2025

99,98%

Hlutfall raforkuvinnslu úr vatnsafli, jarðvarma og vindi árið 2025. Reiknað út frá töflu Raforkueftirlitsins (eldsneyti var um 3,8 GWh af 18.805 GWh).

Á við um framleiðsluna. Upprunaábyrgðir hafa verið seldar úr landi, svo í bókhaldi annarra landa telst hluti orkunnar ekki endurnýjanlegur.

Heimild: Raforkueftirlitið, Umhverfis- og orkustofnun. Yfirfarið 20. október 2026.

Raforkunotkun gagnavera á Íslandi árið 2024

588 GWh

Raforka afhent gagnaverum á Íslandi árið 2024 samkvæmt notkunarflokkum Raforkueftirlitsins.

Opinberar tölur greina ekki á milli gervigreindar, hýsingar og rafmyntagraftar. Lokatölur fyrir 2025 hafa ekki verið birtar.

Heimildir: Raforkueftirlitið, Umhverfis- og orkustofnun; Landsnet, Raforkueftirlitið og Umhverfis- og orkustofnun. Yfirfarið 20. október 2026.

Hlutur gagnavera í raforku til endanlegra notenda á Íslandi árið 2024

3,1%

Gagnaver fengu um 3,1% af þeirri raforku sem afhent var endanlegum notendum á Íslandi árið 2024 (588 af 19.029 GWh).

Heimild: Raforkueftirlitið, Umhverfis- og orkustofnun. Yfirfarið 20. október 2026.

Heildarraforkuvinnsla á Íslandi árið 2025

18.805 GWh

Öll raforka sem framleidd var á Íslandi árið 2025, úr vatnsafli, jarðvarma, vindi og eldsneyti.

Heimild: Raforkueftirlitið, Umhverfis- og orkustofnun. Yfirfarið 20. október 2026.

Heimildir