Hugtök
Helstu hugtökin á vefnum, á íslensku með enska heitinu í sviga.
- Djúpfölsun (deepfake)
Mynd, myndskeið eða hljóð sem búið er til eða breytt með gervigreind svo það virðist sýna eitthvað sem gerðist ekki, oft raunverulega manneskju.
Sjá einnig: Upprunavottun, Hliðarlestur
- Forprent (preprint)
Rannsókn sem birt er opinberlega áður en hún hefur verið ritrýnd. Niðurstöðurnar eru bráðabirgðaniðurstöður.
Sjá einnig: Ritrýni
- Fylgni (correlation)
Þegar tvennt breytist saman. Fylgni sýnir ekki að annað valdi hinu; til þess þarf til dæmis slembiraðaða rannsókn.
Sjá einnig: Slembiröðuð rannsókn
- Gervigreind (artificial intelligence, AI)
Tölvukerfi sem leysa verkefni sem áður kröfðust mannlegrar hugsunar, til dæmis að skilja texta, þekkja myndir eða spá fyrir um eitthvað út frá gögnum.
Sjá einnig: Spunagreind, Mállíkan
- Hending (chance level)
Árangurinn sem fengist með því að giska. Ef valið stendur milli tveggja kosta er hending 50%.
Sjá einnig: Slembiröðuð rannsókn
- Hliðarlestur (lateral reading)
Aðferð staðreyndavakta: að fara af síðunni og opna aðrar heimildir til að athuga hver stendur á bak við efnið, í stað þess að lesa síðuna sjálfa betur.
Sjá einnig: Djúpfölsun, Reiðibeita, Upprunavottun
- Hugræn útvistun (cognitive offloading)
Að nota verkfæri til að létta á hugsun, til dæmis minnislista, dagatal eða gervigreind.
Sjá einnig: Spjallmenni
- Mállíkan (large language model, LLM)
Líkan sem er þjálfað á miklu magni texta til að spá fyrir um næsta orð. Spjallmenni eins og ChatGPT, Gemini og Claude byggja á stórum mállíkönum.
Sjá einnig: Spjallmenni, Þjálfun líkans, Ofskynjun
- Ofskynjun (hallucination)
Þegar gervigreind setur fram rangar upplýsingar sem hljóma trúverðugar, til dæmis heimildir sem ekki eru til.
- Reiðibeita (rage bait)
Efni sem er hannað til að vekja reiði, því reiði fær fólk til að smella, svara og deila.
Sjá einnig: Hliðarlestur, Þjarkaþvæla
- Ritrýni (peer review)
Þegar aðrir sérfræðingar fara yfir rannsókn áður en hún er birt í fræðiriti. Ritrýni dregur úr villum en útilokar þær ekki.
Sjá einnig: Forprent, Slembiröðuð rannsókn
- Slembiröðuð rannsókn (randomised controlled trial, RCT)
Rannsókn þar sem tilviljun ræður hverjir fá meðferð og hverjir ekki. Hún er sterkasta leiðin til að sýna orsakasamband.
- Spjallmenni (chatbot)
Forrit sem svarar fyrirspurnum í samtalsformi. Flest spjallmenni dagsins byggja á mállíkönum.
Sjá einnig: Mállíkan, Þjálfun líkans
- Spunagreind (generative AI)
Gervigreind sem býr til nýtt efni, svo sem texta, myndir, hljóð eða myndskeið, út frá fyrirmælum notanda.
Sjá einnig: Gervigreind, Mállíkan, Þjarkaþvæla
- Þjarkaþvæla (AI slop)
Ódýrt og innihaldsrýrt efni framleitt í miklu magni með gervigreind, oft til að safna smellum eða auglýsingatekjum.
Sjá einnig: Spunagreind, Reiðibeita
- Þjálfun líkans (model training)
Ferlið þar sem gervigreindarlíkan lærir mynstur úr gögnum. Gögn sem hafa verið notuð í þjálfun er yfirleitt ekki hægt að fjarlægja úr líkaninu eftir á.
Sjá einnig: Mállíkan, Spjallmenni