Stoð 2

Lestu heiminn með gagnrýnum augum

Augað dugar ekki til að þekkja falsað efni, og reiði er oft hluti af hönnuninni. Hvað virkar þá?

Síðast yfirfarið:

Augað dugar ekki

Flest höldum við að við myndum þekkja falsaða mynd. Í einni tilraun greindi fólk gervigreindarandlit frá raunverulegum með 48,2% nákvæmni, sem er nánast eins og að kasta upp peningi (Nightingale og Farid 2022). Í könnun Fjölmiðlanefndar völdu 79,1% svarenda ranga mynd (Fjölmiðlanefnd 2026). Og þau sem gera flestar villur eru oft öruggust með sig (Miller o.fl. 2023).

Lestu til hliðar

Staðreyndavaktir lesa ekki síðuna betur, þær fara af henni og athuga hver stendur á bak við efnið (Wineburg og McGrew 2019). Þetta kallast hliðarlestur (e. lateral reading), og það er hægt að kenna hann (Wineburg o.fl. 2022).

Reiðin er hluti af hönnuninni

Rangar fréttir á Twitter voru 70% líklegri til að vera endurtístar en sannar (Vosoughi o.fl. 2018), og hvert orð um pólitíska andstæðinga jók líkur á deilingu um 67% (Rathje o.fl. 2021). Fólk er líka líklegra til að deila hneykslunarefni án þess að lesa það (McLoughlin o.fl. 2024).

Fjölmiðlanefnd orðar þetta einfaldlega: Finnurðu fyrir reiði? Vertu á verði (Fjölmiðlanefnd).

Tortryggni er ekki dómgreind

Fræðsla um brögð falsfrétta hjálpar fólki að þekkja þau (Roozenbeek o.fl. 2022), en sumar aðferðir gera fólk bara tortryggið gagnvart öllum fréttum (Modirrousta-Galian og Higham 2023). Markmiðið er að treysta því sem á það skilið.

Spurningar áður en þú deilir

  • Hver birti þetta upphaflega, og hvað segja aðrir um þann aðila?
  • Hafa aðrir miðlar sagt frá þessu?
  • Finn ég fyrir reiði? Hver græðir á því?
  • Myndi ég deila þessu ef ég hefði aðeins lesið fyrirsögnina?

Tölur á síðunni

Nákvæmni fólks við að greina gervigreindarandlit frá raunverulegum

48,2%

Meðalnákvæmni 315 þátttakenda við að greina andlit gerð með gervigreind (StyleGAN2) frá raunverulegum andlitum. Hending er 50%. Með þjálfun og endurgjöf fór nákvæmnin í 59%.

Prófuð var ein tækni frá 2020–2021 og andlitin voru sýnd án samhengis. Nýrri tækni getur verið enn erfiðari að greina.

Heimild: PNAS (Nightingale og Farid). Yfirfarið 20. október 2026.

Íslendingar sem völdu ranga mynd í myndaprófi Fjölmiðlanefndar

79,1%

Svarendum voru sýndar tvær andlitsmyndir, önnur raunveruleg og hin gerð með gervigreind. 79,1% völdu raunverulegu myndina sem gervigreindarmynd.

Netkönnun Maskínu í nóvember 2025. Prófið byggði á einu myndapari og segir ekki til um almenna getu fólks.

Heimild: Fjölmiðlanefnd og Netvís (Maskína). Yfirfarið 20. október 2026.

Meiri líkur á að rangar fréttir séu endurtístar

70%

Í um 126.000 fréttakeðjum á Twitter 2006–2017 voru rangar fréttir 70% líklegri til að vera endurtístar en sannar, jafnvel að teknu tilliti til fylgjenda og virkni.

Aðeins fréttir sem staðreyndavaktir höfðu metið. Seinni greining bendir til að munurinn á dreifingarmynstri skýrist að mestu af því að rangu keðjurnar voru stærri.

Heimildir: Science (Vosoughi, Roy og Aral); PNAS (Juul og Ugander). Yfirfarið 20. október 2026.

Aukin deiling fyrir hvert orð um pólitíska andstæðinga

67%

Í 2,7 milljónum færslna fréttamiðla og bandarískra þingmanna á Facebook og Twitter jók hvert orð sem vísaði til pólitíska andstæðingshópsins líkur á deilingu um 67%.

Fylgni í athugunargögnum úr bandarískum stjórnmálum. Mælir deilingar, ekki hvort fólk trúði efninu.

Heimild: PNAS (Rathje, Van Bavel og van der Linden). Yfirfarið 20. október 2026.

Heimildir